Fara í innihald

Arúba

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Aruba
Fáni Arúba Skjaldarmerki Arúba
Fáni Skjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Aruba Dushi Tera
Staðsetning Arúba
Höfuðborg Oranjestad
Opinbert tungumál Hollenska og papiamento
Stjórnarfar Þingbundin konungsstjórn
Konungur Vilhjálmur Alexander
Landstjóri Alfonso Boekhoudt
Forsætisráðherra Mike Eman
Sjálfstjórnarsvæði Konungsríkisins Hollands
 • aðskilið frá Hollensku Antillaeyjum1. janúar 1986 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)

180 km²
~0
Mannfjöldi
 • Samtals (2025)
 • Þéttleiki byggðar

108.880
560,4/km²
VLF (KMJ) áætl. 2023
 • Samtals5,5 millj. dala
 • Á mann51.352 dalir
Gjaldmiðill Arúbaflórína (AWG)
Tímabelti UTC-4
Þjóðarlén .aw
Landsnúmer +297

Arúba er eyja í Karíbahafi, aðeins 25 km norðan við Paraguaná-skaga í Venesúela. Stjórnsýslulega er eyjan sjálfstjórnarsvæði sem heyrir undir Konungsríkið Holland og var skipt út úr Hollensku Antillaeyjum árið 1986. Ólíkt því sem gerist á öðrum eyjum í Karíbahafi er loftslag á eyjunni þurrt, sem hefur gert hana að vinsælum ferðamannastað. Ferðaþjónusta stendur undir þremur fjórðu hlutum landsframleiðslu Arúba en aðrar mikilvægar undirstöður undir efnahagslífi eyjarinnar eru gull- og fosfatnámur og olíuhreinsun.

Eyjan er 33 km að lengd, að mestu flöt og laus við ár og vötn. Hvítar sandstrendur er að finna á suður- og vesturströnd eyjarinnar þar sem skjól er fyrir hafstraumum. Austan megin við Arúba eru eyjarnar Bonaire og Curaçao sem mynda suðvesturhluta Hollensku Antillaeyja.

Upphaflegir íbúar Arúba voru caquetio-mælandi Aravakindíánar. Spánverjar lögðu eyjuna undir sig um 1500 en Hollendingar unnu hana af þeim árið 1636. Árið 1928 var olíuhreinsistöð opnuð á eyjunni sem jók velmegun og ýtti undir kröfur um sjálfstæði. Í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1977 reyndust yfir 80% íbúa vera fylgjandi sjálfstæði og í kjölfarið hófust samningaviðræður við Holland. Árið 1990 var sjálfstæðisferlinu frestað um óákveðinn tíma.

Heiti eyjunnar er líklega dregið af caquetíska orðinu Oruba sem merkir „vel staðsett eyja“. Caquetar bjuggu á eyjunni þegar Alonso de Ojeda kom þangað á 16. öld. Frá 1529 til 1648 þegar Vestfalíufriðurinn var undirritaður, notuðu Spánverjar heitið Isla de Oruba yfir eyjuna. Með friðarsamningnum fengu Hollendingar yfirráð yfir eyjunni og nafnið breyttist smám saman í Aruba.

Aðrir hópar amerískra frumbyggja notuðu önnur orð um eyjuna sem gætu tengst núverandi heiti. Annað caquetískt heiti var Oibubia sem merkir „leiðsögð eyja“. Taínóíska heitið var Arubeira.[1] Kalinagóar notuðu tvö heiti um eyjuna: Ora Oubao sem merkir „skeljaeyja“[2] og Oirubae sem merkir „Félagi Curaçao“.

Algengur misskilningur er að nafnið sé dregið af Oro hubo sem merkir „eitt sinn var gull“ á spænsku, en Spánverjar kölluðu eyjarnar fyrst islas inútiles „gagnslausu eyjar“ vegna skorts á auðlindum.[3] Gull fannst á Arúba árið 1824 sem leiddi til gullæðis á Arúba.[4]

Landfræði

[breyta | breyta frumkóða]

Arúba er frekar flatlend, þurrlend eyja. Hún er hluti Hléborðseyja sem eru syðri hluti Litlu Antillaeyja í Karíbahafi. Eyjan er 77 km vestan við Curaçao og 29 km norður af Paraguaná-skaga í Venesúela.[5] Á Arúba er að finna hvítar sandstrendur á vestur- og suðurströnd eyjunnar, í skjóli frá sterkum hafstraumum.[5][6] Þar býr líka meirihluti íbúa og þar hefur ferðaþjónustan helst þróast.[6][7] Við norður- og austurströndina er meira brim og þar er landið að mestu ósnert.

Innar á eyjunni eru hæðir, eins og Hooiberg (165 metrar) og Jamanota-fjall, hæsti tindur eyjarinnar, 188 metrar yfir sjávarmáli.[5][7] Höfuðborgin, Oranjestad, er á 12°31′01″N 70°02′04″V / 12.51694°N 70.03444°V / 12.51694; -70.03444.

Steinboginn Natural Bridge var stór kalksteinsmyndun á norðurströnd eyjarinnar. Hann var vinsæll ferðamannastaður þar til hann hrundi árið 2005.

Stjórnmál

[breyta | breyta frumkóða]

Arúba skiptist í átta héruð sem eru ekki stjórnsýslueiningar heldur aðeins til að auðvelda söfnun tölfræðiupplýsinga.

HeitiFlatarmál (km²)Íbúar
Manntal 1991
Íbúar
Manntal 2000
Íbúar
Manntal 2010
Noord / Tanki Leendert34,6210.05616.94421.495
Oranjestad West9,298.77912.13113.976
Oranjestad Oost12,8811.26614.22414.318
Paradera20,496.1899.03712.024
San Nicolas Noord23,198.20610.11810.433
San Nicolas Zuid9,645.3045.7304.850
Santa Cruz41,049.58712.32612.870
Savaneta27,767.2739.99611.518
Arúba alls178,9166.68790.506101.484

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Dick, Kenneth. „Aboriginal and early Spanish names for some Caribbean, Circum-Caribbean islands and cays“ (PDF). stcroixarchaeology. The St, Croix Archeological Society. Afrit (PDF) af uppruna á 9 október 2022.
  2. ↑ Brushaber, Susan; Greenberg, Arnold (2001). Aruba, Bonaire & Curacao Alive!. Hunter Publishing, Inc. bls. 38. ISBN 978-1-58843-259-9.
  3. ↑ Hartog, Johan (1961). Aruba: Past and Present: from the time of the indians until today. Þýðing eftir Verleun, J.A. Oranjestad: D.J. De Wit.
  4. ↑ Teenstra, M. (1837). De Nederlandsche West-Indische eilanden in derzelver tegenwoordigen toestand, Aflevering 2. In L. U. (KIT), www.colonial.library.leiden.edu (p. 381). AMSTERDAM: C.G.Sulpke.
  5. 1 2 3 Aruba. Afrit af uppruna á 15 maí 2015. Sótt 28 júlí 2019.
  6. 1 2 Canoe inc. (22 júní 2011). „Aruba: the happy island“. Slam.canoe.ca. Afrit af uppruna á 13 apríl 2014. Sótt 15 júlí 2014.
  7. 1 2 „CIA World Factbook - Aruba“. Afrit af upprunalegu geymt þann 9 janúar 2021. Sótt 28 júlí 2019.
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.