James Milner
| James Milner | ||
| Upplýsingar | ||
|---|---|---|
| Fullt nafn | James Philip Milner | |
| Fæðingardagur | 4. janúar 1986 | |
| Fæðingarstaður | Leeds, England | |
| Hæð | 1,75 m | |
| Leikstaða | Miðjumaður, vængmaður, bakvörður | |
| Yngriflokkaferill | ||
| 1996–2002 | Leeds United | |
| Meistaraflokksferill1 | ||
| Ár | Lið | Leikir (mörk) |
| 2002–2004 | Leeds United | 48(5) |
| 2003 | →Swindon Town (lán) | 6 (2) |
| 2004-2008 | Newcastle United | 94 (6) |
| 2005-2006 | →Aston Villa (lán) | 27 (1) |
| 2008-2010 | Aston Villa | 73 (11) |
| 2010-2015 | Manchester City | 147 (13) |
| 2015-2023 | Liverpool FC | 230 (19) |
| 2023-2026 | Brighton & Hove Albion | 39 (1) |
| Landsliðsferill | ||
| 2009–2016 | England | 61 (1) |
|
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk | ||
James Philip Milner (f. 4. janúar 1986 í Leeds, Englandi) er enskur fyrrum knattspyrnumaður. Milner var fjölhæfur leikmaður og gat spilað margar stöður á vellinum.
Hann var alinn upp í Leeds United, spilaði með aðalliðinu og varð yngsti maður til að skora mark í ensku úrvalsdeildinni, 16 ára og 356 daga gamall. Milner spilaði með ýmsum liðum á Englandi og með Manchester City vann hann deildartitla 2011–12 og 2013–14 með liðinu ásamt deildarbikurum; 2010–11 FA Cup og 2013–14 League Cup. Frá 2015 til 2023 spilaði Milner með Liverpool og vann hann Meistaradeild Evrópu með félaginu árið 2019 og ensku deildina 2020.
Milner hætti með landsliðinu árið 2016 en hann spilaði 61 leik og skoraði 1 mark. Hann varð leikjahæsti leikmaður Ensku úrvalsdeildarinnar í febrúar 2026 og. Hann er 8. hæsti í stoðsendingum og á flestar stoðsendingar í Meistaradeildinni á einu tímabili eða 9.
Milner lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2025-2026. [1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Record-holder Milner retires after 24-year career BBC, sótt 1. júní 2026