Fara í innihald

Klæði

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Klæðaefni úr alpakaull á markaði í Ekvador.

Klæði, klæðaefni eða textíll (þótt það eigi strangt til tekið aðeins við um vefnaðarvöru) er hvers kyns efni sem notað er til klæðagerðar. Það nær því yfir bæði ofin klæði, og klæði sem eru þæfð, prjónuð, hekluð, fléttuð úr ýmsum tegundum af trefjum, auk leðurs og annarra náttúrulegra efna og gerviefna (til dæmis laufblaða og plastfilmu), sem eru mótuð í þunn og sveigjanleg klæði til fjölbreyttra nota. Klæði eru meðal annars notuð í föt, bleyjur, sárabindi, gardínur, rúmföt, áklæði, jarðvegsdúka, skotheld vesti og geimbúninga, svo fátt eitt sé nefnt. Síðustu áratugi hafa komið fram klæðaefni úr ýmsum plastefnum (tæknitextíll), með innfelldum rafeindabúnaði (rafeindatextíll) og jafnvel nettengdum tölvubúnaði (snjalltextíll).[1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Linda Wanders (2018). Stafrænn textíll og aðrar nýjungar (PDF) (Report). Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.