Fara í innihald

Pará

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kort.

Pará er eitt af 26 fylkjum Brasilíu. Stærð er nálægt 1.248.000 ferkílómetrar sem gerir það næststærsta fylki landsins. Íbúar eru um 8,7 milljónir (2025) og er höfuðborgin og stærsta borgin Belém. Það er í norðurhluta landsins og á landamæri að löndunum Gvæjana og Súrínam í norðri og fylkjunum Amapá, Maranhão, Tocantins, Mato Grosso, Amazonas og Roraima. Amasónfrumskógurinn þekur stóran hluta af svæði þess.

Pará er nefnt eftir þverá Amasónfljóts með sama nafni.

  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.