Screaming Trees
| Screaming Trees | |
|---|---|
| Upplýsingar | |
| Fæðing | Screaming Trees |
| Stefnur | Grugg |
| Meðlimir | Mark Lanegan, Gary Lee Conner, Van Conner, Mark Pickerel, Barrett Martin, Josh Homme |
Screaming Trees var bandarísk hljómsveit sem stofnuð var í smábænum Ellensburg, Washington-fylki, árið 1984. Sveitin er ein af þeim sem kennd er við gruggbylgjuna (grunge). Hljómsveitin hóf ferilinn sem táningar en gáfu út plötuna Uncle Anesthesia á stórri útgáfu árið 1991 (Chris Cornell var einn framleiðenda plötunnar). Ári síðar kom út vinsælasta plata þeirra, Sweet Oblivion. Lagið Nearly Lost You naut nokkurra vinsælda. [1] Screaming Trees naut ekki sömu vinsælda og stærstu gruggböndin og deilur hljómsveitameðlima urðu til þess að sveitin lagði upp laupana árið 2000. Söngvarinn Mark Lanegan var farinn að einbeita sér æ meir að sólóferli. Afrakstur síðustu upptaka sveitarinnar komu út árið 2011.
Síðar vann Lanegan líka með Queens of the Stone Age en Josh Homme gítarleikari sveitarinnar var stuttan tíma með Screaming Trees. Trommarinn Barrett Martin vann m.a. með R.E.M.. Connor-bræðurnir voru í smærri böndum og sólóverkefnum.
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Mark Lanegan – Söngur (1984–2000; dó 2022)
- Gary Lee Conner – Gítar, bakraddir (1984–2000)
- Van Conner – Bass, bakraddir (1984–2000; dó 2023)
- Mark Pickerel – Trommur (1984–1991)
- Barrett Martin – Trommur, bakraddir (1991–2000)
- Josh Homme – Gítar (1996–1998)
Tónleikameðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Donna Dresch – bass (1988, 1991)
- Sean Hollister – drums (1991)
- Dan Peters – drums (1991)
Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- Other Worlds (1985)
- Clairvoyance (1986)
- Even If and Especially When (1987)
- Invisible Lantern (1988)
- Buzz Factory (1989)
- Change Has Come (1989)
- Uncle Anesthesia (1991)
- Sweet Oblivion (1992)
- Dust (1996)
- Last Words: The Final Recordings (2011)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Screaming Trees - Biography Allmusic