Suðurkrossinn
Útlit

Suðurkrossinn (latína: Crux) er stjörnumerki í Vetrarbrautinni á suðurhimni þar sem fjórar bjartar stjörnur mynda kross. Suðurkrossinn er minnsta stjörnumerkið af 88 stjörnumerkjum nútímans en er auðgreinanlegur þar sem allar fjórar stjörnurnar eru með yfir +2.8 í birtustig. Suðurkrossinn er menningarlega mikilvægur sem tákn víða á suðurhveli Jarðar og birtist meðal annars í fánum Ástralíu, Nýja-Sjálands, Brasilíu, Papúu Nýju-Gíneu og Samóa.
Fánar með Suðurkrossinum
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Suðurkrossinn á Stjörnufræðivefnum Geymt 28 október 2021 í Wayback Machine