Submarino
Útlit
Submarino er kvikmynd frá 2010 í leikstjórn Thomas Vinterberg. Myndin er gerð eftir samnefndri skáldsögu eftir Jonas Bengtsson frá 2007.
Myndinni var vel tekið af gagnrýnendum og hlaut hún Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs sama ár. Hún fékk þó dræma aðsókn, en aðeins 46 þúsund manns fóru á hana í bíó í Danmörku.[1]
Sagan segir frá tveimur bræðrum leiknum af Jakob Cedergren og Peter Plaugborg. Þriðja stærsta hlutverkið í myndinni er Ívan leikin af Morten Rose.
Valdís Óskarsdóttir klipti myndina.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ritzau (24 ágúst 2010). „Vinterbergs fiasko får oprejsning“. Berlingske Tidende (danska). Sótt 5 nóvember 2010.