Fara í innihald

ZZ Top

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
ZZ Top á Tons of Rock, Ósló (2024)

ZZ Top er bandarísk rokkhljómveit sem stofnuð var í Houston, Texas, árið 1969. Sveitin samanstóð í 51 ár af Billy Gibbons (gítar, söngur), Frank Beard (trommur), Dusty Hill (bassi, söngur). Hill lést árið 2021 og tók gítartæknimaður sveitarinnar, Elwood Francis, við bassaleik. Beard lést árið 2026.

Ímynd sveitarinnar hefur verið sólgleraugu, langt skegg og hattar.

Tónlist ZZ Top er lýst sem blúsrokk, harðrokk, boogie-rokk og suðurríkjarokk. Sveitin sló fyrst í gegn árið 1973 með þriðju plötu sinni Tres Hombres og er mest selda platan Eliminator (1983) þar sem meðlimirnir reyndu fyrir sér með rafrænni hljómi.

Árið 2004 hlaut ZZ Top inngöngu í Frægðarhöll rokksins og voru leiddir inn af Keith Richards. [1]

Breiðskífur

[breyta | breyta frumkóða]
  • ZZ Top's First Album (1971)
  • Rio Grande Mud (1972)
  • Tres Hombres (1973)
  • Fandango! (1975)
  • Tejas (1976)
  • Degüello (1979)
  • El Loco (1981)
  • Eliminator (1983)
  • Afterburner (1985)
  • Recycler (1990)
  • Antenna (1994)
  • Rhythmeen (1996)
  • XXX (1999)
  • Mescalero (2003)
  • La Futura (2012)

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ZZ Top - Biography Allmusic