Öglir
| Öglir Tímabil steingervinga: Síðjúra | ||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Líkan af Archaeopteryx lithographica til sýnis í Oxford University Museum | ||||||||||||||
| Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
| Tvínefni | ||||||||||||||
| Archaeopteryx lithographica Meyer, 1861 |
Öglir (fræðiheiti: Archaeopteryx, úr grísku: ἀρχαίος „forn“ + πτερυξ „vængfjöður“) lifði á síðjúra og árkrít þar sem nú er Þýskaland, og er þekktur fyrir það að vera "týndi hlekkurinn" sem sannaði að fuglar voru komnir af risaeðlum. Öglirinn var lengi talinn vera "fyrsti fuglinn" meðal vísindamanna en hafa nú enn fuglslegri steingervingar fundist frá sama tímabili sem gefa í skyn að fuglar voru nú þegar byrjaðir að myndast sem flokkur samhliða öglinum á síðjúra tímabilinu [heimild vantar]. Uppgötvun fyrsta sýnisins, Archaeopteryx lithographica, árið 1861, tveimur árum eftir að Charles Darwin gaf út Uppruna tegundanna, setti af stað miklar umræður um þróun og hlutverk millistigssteingervinga (e. transitional fossils).
Síðar hafa fundist fleiri sýni af ögli, og eru þau nú orðin tíu talsins. Öll sýni sem fundist hafa eru úr kalksteinslagi við bæinn Solnhofen í Þýskalandi. [1] Hinn fíni kalksteinn, sem geymir nákvæmt mót af smáatriðum í líkamsbyggingu sem oftast sjást ekki í steingervingum, er notaður í steinprentsplötur, en til þess vísar lýsingin lithographica („steinprents-“).
Öglirinn sýnir mörg einkenni þeirrar greinar risaeðla sem nefnist þrítáungar (Theropoda). Uppgötvun nokkurra vel geymdra fiðraðra risaeðla í Kína á tíunda áratugnum staðfesti í augum margra vísindamanna tengslin milli risaeðla og fugla.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Earliest Bird Had Feet Like Dinosaur, Fossil Shows National Geographic, 1. desember 2005 (vefsafn)