Flokkur:Maðurinn
Maður (fræðiheiti: Homo sapiens „hinn vitiborni maður“) er algengasta og útbreiddasta tegund fremdardýra á jörðinni. Helstu einkenni manna eru að þeir ganga uppréttir á tveimur fótum og þeir eru með afar þróaðan og flókinn heila sem hefur gert þeim kleift að þróa flókin verkfæri, tungumál og menningu. Vitsmunir og frjálsar hendur hafa leitt til þess að þeir nota fleiri verkfæri, og í meiri mæli, en nokkur önnur þekkt dýrategund. Menn eru sérstaklega leiknir í því að nýta sér samskiptakerfi til sjálfstjáningar og skoðanaskipta. Menn mynda samfélög og mannleg tengsl sem einkennast af gildum, venjum og siðum. Líkt og önnur fremdardýr eru menn forvitnir að eðlisfari. Forvitni og áhugi mannsins á að skilja og móta umhverfi sitt og skýra náttúrufyrirbæri hafa leitt til þróunar vísinda, heimspeki, trúarbragða og fleiri sviða þekkingar.
Undirflokkar
Þessi flokkur hefur eftirfarandi 32 undirflokka, af alls 32.
Síður í flokknum „Maðurinn“
Þessi flokkur inniheldur 16 síður, af alls 16.