1462
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1462 (MCDLXII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Stefánsson Krabbe varð biskup í Skálholti.
- Ólafur Rögnvaldsson biskup lét sex presta sverja að Drangey væri eign Hólakirkju.
- Fædd
- Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 22. janúar - Portúgalski landkönnuðurinn Diogo Afonso óg menn hans komu fyrstir Evrópubúa auga á eyjuna São Vicente við Grænhöfðaeyjar. Portúgalir hófu landnám á eyjunum sama ár.
- 28. mars - Ívan mikli tók við af föður sínum Vasilíj 2. sem stórfursti af Moskvu.
- 17. júní - Vlad Drakúla hrakti Mehmed 2., Tyrkjasoldán, frá Vallakíu.
- 7. júlí - Albanski herforinginn Skanderbeg gerði óvænta árás á hermenn Ottómana í Norður-Makedóníu nútímans.
- 20. ágúst - Her Spánverja frá Kastilíu tók yfir Gíbraltar sem hafði verið á valdi soldánins af Marokkó í 130 ár.
- 15. september - Mehmed 2. Tyrkjasoldán, náði grísku eyjunni Lesbos með 20.000 hermönnum. Eyjan hafði verið á valdi Lýðveldisins Genúa í öld.
- 17. september - Þrettán ára stríðið: Konungsríkið Pólland vann sigur á Þýsku riddurunum við Świecino.
- 28. október - Adolf, erkibiskupinn af Mainz lét drepa 400 manns í borginni vegna deilna um erkibiskupsdóminn.
- Desember - Vlad Drakúla var handsamaður og fangelsaður af konungi Ungverjalands vegna ásakanna um landráð. Bróðir Vlads hafði tekið við stjórnartaumum í Vallakíu og vann með Ottómönum gegn Vlad sem flúði til Transylvaníu.
- Rósastríðin: Jórvíkurætt bar sigurorð af Lancaster-ætt á Írlandi.
- Fædd
- 2. janúar - Piero di Cosimo, ítalskur málari (d. 1521).
- 27. júní - Loðvík 12., konungur Frakklands (d. 1515).
- Dáin
- 27. mars - Vasilíj 2., stórfursti af Moskvu (f. 1415).