Fara í innihald

Antti Rinne

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Antti Rinne
Forsætisráðherra Finnlands
Í embætti
6. júní 2019 – 10. desember 2019
ForsetiSauli Niinistö
ForveriJuha Sipilä
EftirmaðurSanna Marin
Persónulegar upplýsingar
Fæddur3. nóvember 1962 (1962-11-03) (63 ára)
Helsinki, Finnlandi
ÞjóðerniFinnskur
StjórnmálaflokkurJafnaðarmannaflokkurinn
MakiHeta Ravolainen
HáskóliHáskólinn í Helsinki

Antti Juhani Rinne (f. 3. nóvember 1962) er finnskur stjórnmálamaður sem var forsætisráðherra Finnlands í sex mánuði árið 2019. Hann var formaður finnska Jafnaðarmannaflokksins frá 9. maí 2014 til 22. ágúst 2020. Hann var fjármálaráðherra og varaforsætisráðherra landsins frá 2014 til 2015 og hefur setið á finnska þinginu frá árinu 2015.[1][2] Undir stjórn Rinne unnu Jafnaðarmenn nauman sigur í þingkosningum árið 2019. Þann 6. júní árið 2019 var Rinne útnefndur forsætisráðherra Finnlands í samsteypustjórn Jafnaðarmanna, Miðflokksins, Græna bandalagsins, Vinstrabandalagsins og Sænska þjóðarflokksins.[3][4][5]

Rinne er lögfræðingur að atvinnu og er með gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Helsinki.[6] Hann var formaður í stéttarfélagi sérfræðinga í einkageiranum frá 2002 til 2005, formaður stéttarfélags launþega frá 2005 til 2010 og formaður stéttarfélagsins Ammattiliitto Pro frá 2010 til 2014. Rinne sigraði Jutta Urpilainen í formannskjöri Jafnaðarmannaflokksins þann 9. maí árið 2014.[7]

Þann 3. desember árið 2019 lýsti Rinne yfir afsögn sinni úr embætti forsætisráðherra. Afsögn hans kom í kjölfar margra daga verkfalls starfsmanna finnsku póstþjónustunnar sem hafði raskað samgöngum í landinu nokkuð. Vegna framgöngu Rinne í málinu lýsti Miðflokkurinn því yfir að hann nyti ekki lengur trausts þeirra í stjórnarsamstarfinu.[8] Varaformaður Jafnaðarmannaflokksins, Sanna Marin, var í kjölfarið kjörin til að leiða ríkisstjórnina.[9]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Antti Rinne“. Eduskunta. Sótt 9. júní 2019.
  2. ↑ „Ministerit nimikkeittäin - Valtiovarainministeri“. Valtioneuvosto.fi. Sótt 9. júní 2019.
  3. ↑ „Antti Rinne appointed as Finland's new PM“. Yle Uutiset. 6. júní 2019. Sótt 9. júní 2019.
  4. ↑ „Finlande : un nouveau gouvernement pour une politique plus sociale“. Les Échos. 3. júní 2019. Sótt 9. júní 2019.
  5. ↑ „Premier gouvernement de gauche en Finlande depuis 20 ans“. Le Figaro. 6. júní 2019. Sótt 9. júní 2019.
  6. ↑ „Kuka on Antti Rinne?“. Yle. 9. maí 2014. Sótt 9. júní 2019.
  7. ↑ Antti Rinne on SDP:n uusi puheenjohtaja
  8. ↑ Ásgeir Tómasson (3. desember 2019). „Verkfall hjá póstinum felldi finnska forsætisráðherrann“. RÚV. Sótt 3. desember 2019.
  9. ↑ Brynjólfur Þór Guðmundsson (8. desember 2019). „Sanna Marin verður yngsti forsætisráðherra Finna“. RÚV. Sótt 8. desember 2019.


Fyrirrennari:
Juha Sipilä
Forsætisráðherra Finnlands
(6. júní 2019 – 10. desember 2019)
Eftirmaður:
Sanna Marin