Fara í innihald

Daniel arap Moi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Daniel arap Moi
Daniel arap Moi árið 1979.
Forseti Keníu
Í embætti
22. ágúst 1978 – 30. desember 2002
Varaforseti
ForveriJomo Kenyatta
EftirmaðurMwai Kibaki
Persónulegar upplýsingar
Fæddur2. september 1924(1924-09-02)
Sacho, Baringo, Keníu
Látinn4. febrúar 2020 (95 ára) Naíróbí, Keníu
StjórnmálaflokkurKANU
MakiLena Bomett (g. 1950; sk. 1974)
Börn8
HáskóliTambach TTC
Undirskrift

Daniel Toroitich arap Moi (2. september 1924 – 4. febrúar 2020) var kenískur stjórnmálamaður sem var annar forseti Keníu frá 1978 til 2002. Hann er þaulsetnasti forseti í sögu landsins. Moi var áður þriðji varaforseti Keníu frá 1967 til 1978 í forsetatíð Jomo Kenyatta og tók við forsetaembættinu eftir andlát Kenyatta.

Daniel arap Moi fæddist árið 1924 og var kominn af fátækum bændaættum. Fjölskylda hans var kristin og Moi hlaut menntun með styrk kristniboða, sem gerði hann hæfan til að sinna kennslustörfum. Moi vann sér gott álit og var árið 1955 valinn einn af sex fulltrúum svartra Keníumanna á þinginu sem Bretar settu á laggirnar og var aðallega skipað hvítum mönnum. Hann hélt þingsætinu eftir að Kenía hlaut sjálfstæði og þar til hann varð varaforseti.[1]

Moi tók ekki beinan þátt í Mau Mau-uppreisninni gegn Bretum en árið 1955 faldi hann um nokkurt skeið skæruliða sem Bretar voru að leita að.[1]

Árið 1959 hlaut Moi leyfi Breta til að hefja viðræður við Jomo Kenyatta, leiðtoga í sjálfstæðisbaráttu Keníumanna, sem var þá í einangrunarvist í fangelsi Breta. Moi hóf í kjölfarið baráttu fyrir því að Kenyatta yrði leystur úr haldi og fengi að taka þátt í viðræðum um sjálfstæði Keníu. Bretar féllust á þetta, sem jók mjög við hróður Moi.[1]

Fyrsta árið eftir sjálfstæði Keníu var Moi leiðtogi stjórnmálaflokks sem var í andstöðu við flokk Kenyatta. Eftir það féllst Moi hins vegar á beiðni Kenyatta um að flokkarnir yrðu sameinaðir, enda hafði flokkur hans tapað illa í þingkosningum gegn flokki Kenyatta. Moi varð í kjölfarið varaforseti í stjórn Kenyatta, sem hugsaði sér að forseti Keníu ætti alltaf að koma úr þjóðflokki Kíkújúa, fjölmennasta þjóðarbroti landsins, en að varaforsetinn ætti að vera af öðru þjóðerni.[1]

Moi vann sér töluverðar vinsældir sem varaforseti og innti af hendi ýmis verkefni sem Kenyatta fól honum. Eftir að óeirðir brutust út í héruðum Lúóa árið 1969 taldi Kenyatta sér til dæmis ekki óhætt að fara þangað og sendi því Moi þangað sem fulltrúa sinn. Kenyatta lést árið 1978 og Moi tók við forsetaembættinu í samræmi við stjórnarskrá landsins.[1]

Þegar Moi varð forseti átti Kenía í efnahagsörðugleikum vegna lækkunar á verði kaffis, sem var helsta útflutningsvara landsins. Olíuverð var hins vegar hátt og atvinnuleysi mikið vegna mikillar fólksfjölgunar í landinu. Moi brást við erfiðleikunum með því að þrengja að lýðræði í landinu, meðal annars með því að lögfesta flokksræði og fangelsa stjórnarandstæðinga. Árið 1982 reyndu herforingjar í flugher Keníu að steypa Moi af stóli en mistókst.[1]

Árið 1991 féllst Moi á að heimila fjölflokkakerfi í Keníu, þrátt fyrir að hafa lengi neitað að verða við kröfum þess efnis. Undir lok kalda stríðsins höfðu Vesturlönd farið að setja þrengri skilyrði til Afríkuríkja um veitingu þróunaraðstoðar, fremur en að styðja stjórnendur fyrir það eitt að standa gegn kommúnisma.[2] Eftir kosningar í Keníu árið 1992 braust fram ofbeldisalda milli kenískra þjóðernisbrota þar sem stríðsmenn úr Kalenjin- og Masai-þjóðflokkunum myrtu um 1.500 Kíkújúa. Stjórn Moi lét ofbeldið að mestu afskiptalaust.[3]

Á stjórnartíma sínum var Moi oft gagnrýndur fyrir mannréttindabrot og spillingu. Hann var meðal annars sakaður um að nýta uppbyggingu vega og verksmiðja í pólitískum tilgangi gegn stuðningi borga og héraða landsins. Stuðningsmenn hans töldu honum þó til tekna að hafa viðhaldið áframhaldandi stöðugleika í Keníu.[4]

Moi bauð sig ekki fram að nýju árið 2002 en lýsti yfir stuðning við Uhuru Kenyatta, son Jomo Kenyatta, í forsetakosningunum. Val Moi á Uhuru Kenyatta sem arftaka sínum leiddi til ásakana um að hann vildi tryggja að spilling í valdatíð sinni yrði ekki rannsökuð eftir að hann færi frá völdum.[5] Þrátt fyrir stuðning Moi tapaði Uhuru Kenyatta kosningunum fyrir Mwai Kibaki, frambjóðanda stjórnarandstöðunnar.[6]

Moi lést 4. febrúar 2020, þá 95 ára gamall.[4][7]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 3 4 5 6 Þórarinn Þórarinsson (10. ágúst 1982). „Stjórnkerfi Kenyatta að riða til falls“. Tíminn. bls. 7.
  2. ↑ Dagur Þorleifsson (4. desember 1991). „Einflokksræði afnumið í Kenýu“. Þjóðviljinn. bls. 7.
  3. ↑ Kolbeinn Þorsteinsson (7. janúar 2008). „Kornið sem fyllti mælinn“. Dagblaðið Vísir. bls. 8–9.
  4. 1 2 „Daniel arap Moi er látinn 95 ára gamall“. mbl.is. 4. febrúar 2020. Sótt 1. desember 2025.
  5. ↑ „Tvísýnt um úrslit kosninga í Kenýa“. Morgunblaðið. 28. desember 2002. bls. 20.
  6. ↑ „Mwai Kibaki tekinn við embætti forseta Kenýa“. Morgunblaðið. 31. desember 2002. bls. 21.
  7. ↑ Atli Ísleifsson (4. febrúar 2020). „Fyrr­verandi for­seti Kenía er allur“. Vísir. Sótt 1. desember 2025.


Fyrirrennari:
Jomo Kenyatta
Forseti Keníu
(22. ágúst 1978 – 30. desember 2002)
Eftirmaður:
Mwai Kibaki