Fara í innihald

Hatari

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hatari
Hatari í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2019
Upplýsingar
UppruniReykjavík, Ísland
Ár2015–í dag
Stefnur
ÚtgáfufyrirtækiSvikamylla ehf.
Meðlimir
  • Klemens Hannigan
  • Einar Stefánsson
  • Davíð Katrínarson
Fyrri meðlimir
  • Matthías Haraldsson
Vefsíðahatari.is

Hatari er íslensk hljómsveit (eða margmiðlunarverkefni) sem var stofnuð árið 2015. Sveitin flytur raftónlist/iðnaðarteknó, með ádeilutexta og líflega sviðsframkomu með BDSM-ívafi. Fyrst kom sveitin saman á Iceland Airwaves árið 2016. Hatari var valin besta tónleikahljómsveit ársins 2017 af tímaritinu Reykjavík Grapevine.

Hugðarefni sveitarinnar eru að eigin sögn: Dauðinn, umbylting á samfélagi manna, tilgerðin sem felst í mannlegri tilveru, neyslusamfélagið og heimsendir.[1]

Einar Stefánsson sem hafði lært trommuleik kynntist Klemens Hannigan í menntaskóla í Belgíu. Þeir fóru að leika sér í upptökuveri þar. Það varð grunnurinn að því sem varð indí-hljómsveitin Kjurr sem keppti í Músíktilraunum 2013. [2] Matthías Tryggvason er frændi Klemens og hófu þeir síðar að semja raftónlist. Það varð að Hatara. Árið 2016 spilaði sveitin á tónleikahátíðum eins og Eistnaflug, LungA, Norðanpaunk og Iceland Airwaves. Stuttskífan Svikamylla kom út árið eftir og gerði sveitin myndbönd við nokkur laga á plötunni.

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva

[breyta | breyta frumkóða]
Söngvakeppnin 2019.

Árið 2019 vann Hatari forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á Íslandi með lagið „Hatrið mun sigra“.[3] Hljómsveitin hélt út til Ísraels og vakti þar talsverða athygli. Þrír dansarar komu fram með hópnum. Hatara voru settar línur af framkvæmdastjóra Söngvakeppninnar að ganga ekki of langt í pólitískum yfirlýsingum.

Hatari endaði í 10. sæti í keppninni. Þegar stigagjöf áhorfenda var gefin dró hljómsveitin upp borða með palestínska fánanum. Í kjölfarið gaf sveitin út lag og myndband með samkynhneigðum palestínumanni, Bashar Murad.[4]

Neyslutrans

[breyta | breyta frumkóða]

Í janúar 2020 gaf sveitin út sína fyrstu breiðskífu, Neyslutrans og myndband fyrir smáskífuna „Engin miskunn“.[5] Sveitin hélt útgáfutónleika í Austurbæ og til stóð að halda á Evróputúrinn Europe Will Crumble með Cyber sem upphitunarhljómsveit. Það frestaðist vegna Covid.

Í júlí 2022 hefur Íris Tanja fyllt skarð fyrir Ástrós sem tók ekki þátt í nýlegum tónleikum vegna meðgöngu, en Andrean tók ekki þátt í tónleikaferðinni af persónulegum ástæðum.[6]

Í mars 2023 ákvað Mattías Haraldsson að yfirgefa hljómsveitina og einbeita sér að föðurhlutverkinu.[7] Næsta mánuð gaf Klemens Hannigan út smáskífu sína „Never Loved Someone So Much“. [8]

Síðar á árinu tók Davíð Þór Katrínarson við sem söngvari. [9]

  • Klemens Hannigan
  • Einar Stefánsson
  • Davíð Þór Katrínarson
  • Sólbjört Sigurðardóttir
  • Sigurður Andrean Sigurgeirsson
  • Ástrós Guðjónsdóttir
  • Ronja Mogensen
  • Birta Ásmundsdóttir

Fyrrum meðlimir

[breyta | breyta frumkóða]
  • Mattías Haraldsson

Ferðadansarar

[breyta | breyta frumkóða]
  • Íris Tanja Flygenring

Útgefið efni

[breyta | breyta frumkóða]

Breiðskífur

[breyta | breyta frumkóða]
  • Neyslutrans (2020)

Stuttskífur

[breyta | breyta frumkóða]
  • Neysluvara (2017)

Smáskífur

[breyta | breyta frumkóða]
  • „Ódýr“ (2017)
  • „X“ (2017)
  • „Spillingardans“ (2019)
  • „Hatrið mun sigra“ (2019)
  • „Klefi / Samed“ (2019)
  • „Klámstrákur“ (2019)
  • „Engin miskunn“ (2020)
  • „Dansið eða deyið“ (2022)
  • „Breadcrumbs“ (2024)
  • Quantity Control (2025)
  • Fuck You Look Good (2026)

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Hatari afhjúpa svikamyllu hversdagsins Rúv, skoðað 2. mars, 2019.
  2. ↑ „Blokkflautur eru versta uppfinning mannsins“ Rúv, sótt 8/10 2023
  3. ↑ Hatari vann Söngvakeppnina Vísir, skoðað 3. mars, 2019
  4. ↑ Nýt lag frá Hatara Rúv, skoðað 24. maí, 2019.
  5. ↑ Hatari heimtir alla Rúv, skoðað 21. feb, 2020.
  6. ↑ „Íris Tanja dansaði með Hatara í Evrópu“. web.archive.org. 12 ágúst 2022. Afritað af uppruna á 12 ágúst 2022. Sótt 18 apríl 2023.
  7. ↑ Matti hættur í Hatara, klæðir sig úr leðurgallanum í pabbapeysuna Geymt 4 mars 2023 í Wayback Machine Fréttablaðið, sótt 4. mars 2023
  8. ↑ Hatarinn Klemens sýnir á sér mjúkar hliðar Vísir, 23/4 2023
  9. ↑ Davíð tekur auðmjúkur við keflinu af Matta í Hatara Mbl.is, sótt 12/2 2024