Fara í innihald

Mississauga

Mississauga
Svipmyndir
Svipmyndir
Gróft kort af borginni
Gróft kort af borginni
Mississauga er staðsett í Kanada
Mississauga
Mississauga
Staðsetning í Kanada
Hnit: 43°36′N 79°39′V / 43.600°N 79.650°V / 43.600; -79.650
Land Kanada
Fylki Ontaríó
Stofnun1875
Flatarmál
 • Samtals292,43 km2
Hæð yfir sjávarmáli
156 m
Mannfjöldi
 (2021)[1]
 • Samtals717.961
TímabeltiUTC−05:00 (EST)
 • SumartímiUTC−04:00 (EDT)
Vefsíðawww.mississauga.ca Breyta á Wikidata

Missisauga er borg í suður-Ontaríó í Kanada. Hún er 7. stærsta borg landsins með 717.961 íbúa (2021).[1] Borgin er hluti af Stór-Torontó svæðinu, er samtengd Torontó og er yfirleitt talin úthverfi hennar.

Borgin heitir eftir Algonkinsku frumbyggjunum Mississauga. Þeir hröktu annan frumbyggjahóp Írókesa af svæðinu á 18. öld. Uppruna borgarinnar má rekja til 1805 þegar embættismenn frá York (síðar Torontó) keyptu land af frumbyggjum.

Í dag er borgin fjölmenningarborg og eru stærstu minnihlutahópar árið 2021: Suður-Asíubúar: 25,4%, Kínverjar: 7,3%, svartir: 6,9%, Filippseyjingar: 5,4%. Hvítir eru 37,6%.[2] Rúmlega helmingur hefur annað móðurmál en ensku. Á hverju ári í maí er fjölmenningarhátíðin Carassauga haldin í borginni.

Ein stærsta verslunarmiðstöð Kanada er í Missisauga: Square One Shopping Centre. Flugvöllurinn Toronto Pearson International Airport er innan borgarinnar.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Census Profile, 2021 Census Mississauga Population“. Census Canada. 9 febrúar 2022. Sótt 9 febrúar 2022.
  2. ↑ Government of Canada, Statistics Canada (26 október 2022). „Census Profile, 2021 Census of Population“. www12.statcan.gc.ca. Sótt 11 janúar 2023.

Fyrirmynd greinarinnar var „Mississauga“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14 feb. 2017.