Ontaríó
Ontaríó
Ontario | |
|---|---|
| Kjörorð: | |
Staðsetning Ontaríó í Kanada | |
| Hnit: 50°N 85°V / 50°N 85°V | |
| Land | |
| Aðild að ríkjabandalaginu | 1. júlí 1867 (Fyrsta, með Nova Scotia, Nýju-Brúnsvík, Québec) |
| Höfuðborg (og stærsta borg) | Torontó |
| Stjórnarfar | |
| • Landstjóri | Edith Dumont |
| • Forsætisráðherra | Doug Ford |
| Þingmenn neðri málstofu | 122 af 343 (35,6%) |
| Þingmenn öldungadeildar | 24 af 105 (22,9%) |
| Flatarmál | |
| • Samtals | 1.076.395 km2 |
| • Land | 917.741 km2 |
| • Vatn | 158.654 km2 (14,7%) |
| • Sæti | 4. sæti |
| 10,8% af Kanada | |
| Mannfjöldi (2021) | |
| • Samtals | 14.223.942[2] |
| • Áætlað (2026) | 16.136.480[3] |
| • Sæti | 1. sæti |
| • Þéttleiki | 13,21/km2 |
| Tímabelti | |
| Mestallt fylkið | UTC−05:00 (EST) |
| • Sumartími | UTC−04:00 (EDT) |
| Norðvesturhluti fylkisins | UTC−06:00 (CST) |
| • Sumartími | UTC−05:00 (CDT) |
| Skammstöfun póstfangs | ON |
| Póstfangsforskeyti |
|
| ISO 3166 kóði | CA-ON |
| Opinber tungumál | enska |
| Vefsíða | www |
| Sætaröðun miðast við öll fylkin og svæðin. | |



Ontaríó (enska: Ontario) er fylki í miðausturhluta Kanada. Það er fjölmennasta fylki Kanada og það næststærsta að flatarmáli, á eftir Québec.
Samfélag
[breyta | breyta frumkóða]Höfuðborg Kanada Ottawa og stærsta borg landsins, Torontó, eru í fylkinu. Aðrar borgir sem nefna má eru: Mississauga, Kitchener, London, Oshawa, Hamilton og Windsor. Íbúar eru rúmar 16,1 milljónir (2026).[3]
Flestir íbúar Ontaríó eru af evrópskum uppruna, til að mynda breskum, írskum og ítölskum. Meira en fjórðungur þeirra tilheyrir ýmsum minnihlutahópum. Enska er helsta tungumálið, en um 5% tala frönsku sem móðurmál og 11% eru tvítyngdir með ensku og frönsku.
Trúar-/lífsskoðunarhópar eru: kaþólskir: 31,4%, ótengdir trúarbrögðum: 23,1%, mótmælendatrúar: 21,1%, aðrir kristnir söfnuðir: 9,7%, múslimar: 4,6%. hindúar: 2,9%, rétttrúnaðarkirkjan: 2,4%, gyðingar: 1,5%, síkar: 1,4% og búddistar: 1,3%.
Söguágrip
[breyta | breyta frumkóða]Frumbyggjar höfðu verið í árþúsundir á svæðinu áður en franskir og breskir landkönnuðir komu þangað í byrjun 17. aldar. Frakkar áttu í erfiðleikum með landvinninga þar sem Írókesar gerðu bandalag við Breta. Frumbyggjar fengu að kenna á farsóttum Evrópubúa eins og mislingum og bólusótt. Bretar stofnuðu verslunarstaði við Hudson-flóa og urðu áhrifamiklir. Árið 1791 varð hluti af því svæði sem nú er Ontaríó, þ.e. svæðið vestur af Saint Lawrence-fljóti, að hluta til að Efra-Kanada, og sá hluti sem er austan fljótsins að Neðra-Kanada.
Árið 1812, í stríðinu sem kennt er við það ártal, urðu átök milli Breta og Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn réðust inn í landið og náðu nokkrum svæðum á sitt vald en voru reknir til baka. Er þeir flýðu lögðu þeir eld að bænum York (sem nú er Torontó). Eftir stríðið var ákveðið að beina athyglinni frekar að innflytjendum frá Bretlandseyjum heldur en Bandaríkjunum.
Árið 1840 urðu Efra- og Neðra-Kanada að fylkinu Kanada (enska: Province of Canada). En árið 1867 var því skipt upp í Ontaríó og Québec eftir tungumálalínum. Með tilkomu kanadísku Kyrrahafsjárnbrautarinnar (Canadian Pacific Railway, lögð 1875–1885) varð efnahagurinn blómlegur og stöðugt fleiri evrópskir innflytjendur komu á svæðið. Virkjun Níagara-fossa færði iðnaðinum aukinn kraft.
Eftir fyrri heimstyrjöld ríkti talsverð andúð á Þjóðverjum í fylkinu og ákveðið var að breyta nafni borgarinnar Berlín í einu héraði þess í Kitchener, eftir breskum flotaforingja. Mikill uppgangur var eftir seinni heimstyrjöld og Torontó varð miðstöð viðskipta í landinu en bílaiðnaður byggðist upp í suðurhluta fylkisins.
Landafræði og náttúrufar
[breyta | breyta frumkóða]Ontaríó er 1.076.395 ferkílómetrar að stærð.[1] Fylkjamörk þess liggja að Manitóba í vestri og Québec í austri en í suðri eru fimm bandarísk fylki (frá austri til vesturs); Minnesota, Michigan, Ohio, Pennsylvanía og New York. Vötnin miklu: Ontaríó-vatn, Miklavatn, Erie-vatn og Húron-vatn mynda stóran hluta landamæranna. Saint Lawrence-fljót er skipgengt frá vötnunum miklu til Atlantshafs.
Ontaríó er stundum skipt í suður- og norðurhluta. Mikill meirihluti íbúanna býr í suðurhlutanum og ræktarland er mest þar. Norðurhlutinn er mun strjálbýlli, skógi vaxinn og þar er loftslag kaldara. Mestur hluti fylkisins er láglendi en hæðótt er á Kanada-skildinum. Hæsti punktur nær tæpum 700 metrum í norðausturhlutanum. Einnig eru hæðir syðra, í Niagara-hjallanum. Point Pelee er syðsti punktur Kanada, þar er þjóðgarður með sama nafni; Point Pelee-þjóðgarðurinn.
Í fylkinu eru sumur heit og vetur kaldir. Vötnin miklu milda loftslagið í nágrenni sínu í Suður-Ontaríó á veturna þegar þau skila frá sér hitanum sem þau taka til sín á sumrin. Úrkoma er frá 750-1000 mm og dreifist jafnt yfir allt árið. Í Norður-Ontaríó kælir Hudson-flói loftið á sumrin.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 „Land and freshwater area, by province and territory“. Statistics Canada. 7 október 2016. Sótt 3. september 2026.
- ↑ „Population and dwelling counts: Canada, provinces and territories“. Statistics Canada. Sótt 3. september 2026.
- 1 2 „Population estimates, quarterly“. Statistics Canada. 17 júní 2026. Sótt 3. september 2026.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirmynd greinarinnar var „Ontario“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. feb. 2017.