Fara í innihald

Forsíða

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Grein mánaðarins

Al Capone

Al Capone

Al Capone var bandarískur glæpaforingi sem var virkur á bannárunum í Chicago á þriðja áratugnum.

Capone var af ítölskum uppruna og leiddi glæpasamtök í Chicago í Bandaríkjunum á áfengisbannsárunum, 3. áratug síðustu aldar. Hann fæddist í New York, foreldrar hans voru ítalskir innflytjendur og hann gekk í skóla fram til fermingaraldurs. Hann fór þá að stunda smáglæpi í New York fram til tvítugsaldurs þegar hann fluttist til Chicago til þess að nýta sér áfengisbannið, að græða á sölu og smygli ólöglegs áfengis.

Hann reis fljótt hátt í völdum í glæpasamtökum Chicago og um 1925 var hann leiðtogi glæpasamtaka þar í borg. Ásamt áfengisglæpunum mútaði hann yfirvöldum og stóð í blóðugum stríðum við óvinaglæpasamtök ásamt vændi og fjárhættuspilum. Einn alræmdasti glæpur hans mun vera Valentínusardagsmorðin árið 1929 þegar menn hans drápu sjö af óvinaklíkumeðlimum hans. Hann var dæmdur fyrir skattsvik árið 1931 og eyddi átta árum í fangelsi, meðal annars í Alcatraz en var sleppt 1939 af heilsufarsástæðum, en hann var með alvarlegt tilfelli af sárasótt. Hann dó árið 1947 í villu sinni í Flórída.

Fyrri mánuðir: Náhvalur  Írena frá Aþenu  Diego Maradona

Vissir þú...

Frægðarbrautin
Frægðarbrautin
  • … að kvikmyndin Frægðarbrautin (sjá mynd) frá 1957 var ekki sýnd í Frakklandi fyrr en árið 1975 vegna þess hve hún sýndi franska herinn í neikvæðu ljósi?
  • … að ýmsir evrópskir fræðimenn ferðuðust til Mið-Austurlanda til að kynna sér nýjungar í stærðfræði og læknisfræði á tíma gullaldar íslams frá 8. öld til 13. aldar?
  • … að austurlenskir drekar eru sagðir geta stjórnað vatni og rigningu og hafa þess vegna verið tilbeðnir til þess að bjarga uppskeru frá þurrki?
  • … að Samveldisleikarnir voru fyrsta alþjóðlega fjölíþróttamótið með jafn mörg verðlaun fyrir karla og konur?
  • … að viðartittlingur sást í fyrsta skipti á Íslandi í júlí 2026 og hafði þá aðeins einu sinni sést í Evrópu, á Skáni um áratug fyrr?

Fréttir

Hákon 8.
Hákon 8.

Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu  Íransstríðið
Nýleg andlát: Sigríður Þorvaldsdóttir (31. ágúst)  Haraldur 5. (28. ágúst)  Ratko Mladić (27. ágúst)  Dolly Parton (25. ágúst)  Steinn Ármann Magnússon (21. ágúst)

Merkisviðburðir

2. september

Systurverkefni

Commons Commons
Samnýtt margmiðlunarsafn
Incubator Incubator
Ræktun nýrra verkefna
Meta-Wiki Meta-Wiki
Samvinna milli allra verkefna
Wikiorðabók Wikiorðabók
Orðabók og samheitaorðabók
Wikidata Wikidata
Samnýttur þekkingargrunnur
Wikibækur Wikibækur
Frjálsar kennslu- og handbækur
Wikivitnun Wikivitnun
Safn tilvitnana
Wikiheimild Wikiheimild
Forntextar og frjálst efni
Wikilífverur Wikilífverur
Safn tegunda lífvera
Wikiháskóli Wikiháskóli
Frjálst kennsluefni og verkefni
Wikivoyage Wikivoyage
Ferðaleiðarvísar
Wikifunctions Wikifunctions
Notkun gagna með kóða
Phabricator Phabricator
Hugbúnaðarvillur
MediaWiki MediaWiki
Þróun hugbúnaðarins
Wikitech Wikitech
Upplýsingar um hugbúnaðinn
Wikispore Wikispore
Verkefni í tilraunaskyni